|
|
13.11.2007 17:49:51 / fag1
Jæja. Þá er farið að líða að því að ég komi heim. Einungis mánuður í það. Og er dagskráin alveg pökkuð til síðasta dags. Eins og þið vitið öll er ég bloggari dauðans, svo ég er ekki duglegur við þessa iðkun og mun ég aldrei verða það. Margt annað skemmtilegra sem kemur til greina en að blogga, tala nú ekki um WOW. Ástæða fyrir blogginu er að ég á að vera að læra fyrir próf, en ég á mjög erfitt með að halda einbeitingu meira en 1.5 tíma í senn. Það sem er næst á daskrá hjá okkur Hildi er sigling á Karabíska hafið í 6 daga. En þess má get að skipið sem við förum með er það flottasta sem til er. http://www.cruiseweb.com/RCI-NAVIGATOR.HTM . Getið kíkt á það á heimasíðunni. Það er með 4 veitinga staði , indoor ice scating og climbing svo eitthvað sé nefnt. Okkur er farið að hlakka svakalega til ferðarinnar. Hitinn hérna í Miami er orðinn mjög þæginlegur, hiti um 20°c og lítill raki svo þetta er eins og mjög gott sumarveður heima(bara alla daga). Ekki slæmt það. Í dag í tíma þegar kollegi minn horfði á lyftingamyndband, af manni deadda 800 lb, kom upp föðurlandvinurinn. Ég sagði honum að ég vissi um mann sem tæki yfir 1000lb en hann átti bágt með að trúa því. Því sýndi ég honum þegar Jón Páll deddaði 1200lb. . Hann hafði aldrei séð annað eins. ÍSLAND Best í heimi. Svo sagði ég bekknum mínum að íslensku víkingarnir hefðu tekið allar fallegu konurnar frá englandi og flutt þær til íslands því þeir voru eitthvað að spyrjast um víkingana. Og auðvitað gleyptu allir við því. Meina hvað er annað hægt en að trúa því ef þú hefur komið til Bretlands . En reyni að vera duglegri. Kannski kemur næsta færsla eftir mánuð Fannar
»
01.10.2007 23:27:07 / fag1
Undanfarna daga hefur rignt mjög mikið hérna í Miami og ég held bara að um sé að ræða Monsson. Þó svo að Monsson er hinum megin á hnettinum þá held ég satt best að segja að hann sé kominn hingað. Froskum til mikillar gleði því í gær þegar ég ætlaði að sofa heyrði ég eitthvað hljóð úti, það hátt að ég var pirraður á 10. hæð þegar upp í rúm var komið. Þá voru froskarnir byrjaðir að syngja (eða kvaka) í pollinum sem myndaðist hér fyrir utan. Í morgun drattaðist ég á fætur um hálf 9 leitið, leit út um gluggann og sá varla neitt út vegna rigningar, þetta var líka fyrsti dagurinn sem ég klæðist peysu í skólanum. Ekki það að ég geti ekki forðast rigninguna með regnhlíf, regnfötum eða öðru slíku en þá blótaði ég sjálfum mér í dag fyrir að vera ekki löngu búinn að kaupa regnhlíf. Nú í þessum töluðu orðum var ég að koma úr gufu, fór í hana á aftir ræktinni. Nú byrjar æfingasísonið og er undirbúningur hafinn svo snemma til þess eins að verja golftitilinn á næsta ári, þegar við Baldur (Bróðir Hildar) mætum Gamla manninum (Knútur) og Sigrúnu í æsispennandi keppni næsta sumar sem haldin verður vonandi í Hafnarfirðinum. En við Baldur þykjum að sjálfsögðu mun líklegri til sigurs . Svo var ég að athuga með golfvelli en þeir eru frekar ódýrir hérna, með bíl kostar yfirleitt um 35 dollara að spila 18 holur. Heima kostar 4000 kr að spila án golf bíls . Og það er enginn að segja mér að golfvellir séu betri heima. En nú er nóg komið. Prison break og Heroes í kvöld. Fannar
»
27.09.2007 21:48:02 / fag1
Lífið hérna heldur áfram að vera mjög fínnt enda lítið búið að gerast hjá Miami dade police. Einungis eitt morð að ég veit, sem er búið að vera hér á meðan dvöl okkar hefur staðið yfir, en þá var lögga drepin í skotárás aðeins frá University of Miami. Enn er ekki er búið að ná kauða að svo stöddu en verðlaunafé fyrir þann sem gefur vísbendingu um hann er um 100 þús dollarar. Svo í fréttunum i gær sögðu þeir frá því að óprúður gröfumaður ákvað að ræna hraðbanka. Þeir eru að sjálfsögðu vel festir við jörðina og ákvað hann því að nota afturskófluna á gröfunni og moka honum uppá pall. Hann náði að sleppa með hraðbankann en einhvernveginn held ég að hann muni nást fljótlega. En nóg um þetta. Í dag talaði ég við spánverja sem er með mér í bekk, Alberto. Hann sagði mér að það væri Music festival í New orleans 27 oct næstkomandi og spurði hvort ég vildi ekki koma. Ég spurði hann auðvitað hvaða bönd væru að spila á hátíðinni. Hann tjáði mér að Rage against the machine og The smashing Pumpkins séu að fara að spila. YESSSSSSS  Það verður draumur að sjá billy c. Ekki margir sem hafa séð smashing live. Það er einungis eitt sem er mér til ama og það er að Famelían mín kemur í heimsókn þann 22 okt og verður til 29 okt. Ég tek þá bara strákana með á tónleikana og m&P geta bara sólað sig á south beach á meðan. Er það ekki annars m&p. Festivalið heitir voodoo festival í new orleans og er slóðin http://www.last.fm/event/272458 En Nú þarf ég að hætta að blogga, er að gera ritgerð fyrir enskukúrsinn. p.s. þarf að kaupa miða í næstu viku svo ég þarf að tala við M&P sem fyrst varðandi þetta.
»
24.09.2007 01:30:44 / fag1
Afsakið bloggleysið hjá mér. En að blogga er ekkert tilhlökkunarefni hjá mér og hefur aldrei verið. Ég get því miður ekki látið myndir inná síðuna því að við erum því miður ekki með myndavel en það kemur bráðum. Um helgina fór Hildur að keppa í fótbollta með fótbollta klúbb sem hún er í. Og var ég því einn heima um helgina. Og hvað gerist ég(djammi strípa að sögn tussa) er einn heima. Auðvitað skellti ég mér í teiti með skiptinemunum. Það er alltaf helvíti mikið stuð nema það að allir drekka Budweiser mér til mikillar gremju. Ég kom með minn bjór sem fólkið óð í og kláraðist hann strax svo ég var allslaus, ekki sjens að Budweiserinn komi nálægt vörum mínum nema þegar það er nauðsynlegt. Annars er ekki mikið að gera þessa stundina, ég er að vinna í því að koma löppinni í lag svo maður geti byrjað að taka aftur á því. Núna var ég að enda við að elda gúrmet takkó eða fahitas eða hvað sem þetta heitir nú og að vana var þetta gott
»
15.09.2007 01:53:50 / fag1
Gúrmét Nautakjöt að hætti Fannars með Norton(cabernet sauvignon) rauðvíni og ískaldur kiren chiban bjór. Hvað er betra en þessi blanda? Ekkert Lífið er ekkert á niðurleið hér, Nú situr maður horfir á sjónvarpið og hlustar á síðdegis þrumurnar dynja.Mjög róandi, skemmtilegra en sírenuvæl sem maður heyrir oftar en ekki hér. Í dag áttaði ég mig á því að það var kannski bara ágætt að ég þurfti stundum að hjálpa til við að þrífa heima því í dag var þrifnaðardagur. Var komið zemí drasl í íbúðinni og ákváðum við að taka til. Í dag ákvað ég að skella mér á barinn klukkan 12 og fékk mér bjór, fór heim með Hildi. Ég fór að sofa á meðan Hildur fór í sólbað. Ekki slæmur dagur. Fyrir ykkur vanþaklátu(Steinþór) ætla ég að gera þessa áhugaverðari með því að setja nokkrar góðar mataruppskriftir. Það er hér til vinstri undir ,uppskriftir,. Nú þegar er ein komin inn og vil ég taka það fram að Kristján matreiðslukennari í flensborg á heiðurinn á henni. Yfir og út Fannar
»
10.09.2007 19:55:02 / fag1
Vá hvað það rifjaðist upp fyrir mig ,seinnipart laugardagsins, þegar faðir minn sagði við mig í denn að maður ætti aldrei að vera með sólarvörn sem er minni en 25. Málið er nefnilega það að á laugardaginn fór ég og Hildur á South Beach og höfðum gaman af, og þá sérstaklega þegar maður kom labbandi fram hjá okkur í svona þveng eins og Borat var í. Ég bar á mig sólarvörn,nr.8, átti að fara að tana sig í fyrsta sinn í ferðinni. Þegar heim var komið var ég með nokkrar rauðar rendur á líkamanum þar sem vörnin náði ekki að hylja. Það er ekki það þægilegasta sem til er í heiminum, sviði og leiðindi. Næst skal ég muna eftir því að bera á mig allan. Alltaf lærir maður eitthvað nýtt. Þessa dagana erum við búin að horfa á myndir á kvöldin. Kom okkur á óvart að á sumum stöðvum eru myndirnar á repeat, héllt að bíórásin væri slæm. Við sumsé horfðum á mynd og velltum því fyrir okkur hvaða mynd skyldi vera næst. Þá kom :,, Misstir þú af byrjuninni af myndinni sem var að klárast? Örvændið ekki hún byrjar aftur eftir 5 mín''. WTF Í dag var skýjað í fyrsta sinn síðan ég kom . Djöfull var það ljúft Úrslit kannarinnar. Tussi þruma heitir hann víst, var ekki alveg viss hvort það væri pissi eða tussi.
»
06.09.2007 03:35:24 / fag1
Það eru greinilega ekki allir sömu skoðunar og ég með tónlist, en fyrir ykkur sem hafið lélegan tónlistasmekk þið eruð asnar. Og eitt enn, sambandi við skoðunarkönnunina þá áttuð þið ekki að kjósa neitt og vegna þess er ég illa svikinn með það að einhver skuli voga sér að kjósa. í heiminum. Hérna koma úrslitin Besti Bjórinn? Budweiser 86% Bud light 0% Coors 0% Coors light 14% Stelpurnar fóru í dag og er orðið voða einmannalegt í búi okkar Hildar. Nú neiðist maður til þess að byrja að læra,og ég hef engan til að níðast á. Kannski maður hafi bara gott af smá lærdómi, eða hver hefur það svo sem? Ég var að fá myndir frá Guðnýju og mun ég við tækifæri setja það á netið til að sýna ykkur hvernig lífið er hér í gettóinu í Miami. Talandi um gettó. Þá eru auðvitað nokkur riskí hverfi hérna í Miami, og í skólanum nefndu þau nokkur sem er stranglega bannað að fara í. Um daginn fórum við Ingi útí búð villtumst í þannig hverfi. Án djóks þá vorum við zemí hræddir við það eitt að keyra þarna um. Svo eru einhverjir að tala um að Breiðholltið sé gettó.
En svona fyrir ykkur hina þá er stefnan tekin á south beach um helgina. Vill einhver joina? Bíddu hvernig er veðrið heima? Rigning, og kannski rok? Aldrei rok heima er það nokkuð?
»
04.09.2007 21:33:00 / fag1
DJÖFULSINS DRASL BLOGG
Var að enda við að skrifa langt og skemmtilegt blogg og þá ákvað þetta helvítis central að gera einhvern fjandann og þá hvarf textinn. Þannig að ég hef þetta stutt en gott.
Fórum um helgina til orlando. Það var gaman
Og á key west í dag. Fínnt. 24/7 gufubað hérna.
Þið sem þekkið mig vitið að ég fer á Oliver á hverjum degi, helst 2 x á dag. Dýrka svona plebbastaði þar sem "ríku" plebbarnir sem sýna peninga fá nánast hvaða "mellu" sem er á staðnum. Alltaf hef ég þá hugsað, vá hvað það er mikið af viltausum stelpum á Íslandi.
Á laugardaginn komst ég að því að íslensku stelpurnar eru ekki þær einu sem geðjast að svona mönnum. Þá fórum við á stað sem heitir Mansion eða eitthvað. Þar komumst við VIP inn því í hópnum voru 5 ljóshærðar stelpur.
Þessi staður á að vera sá allra heitasti á South Beach, fræga fólkið fer alltaf á þennan stað og alltaf pakkaður staður. Staðurinn er stór og skiptist í 2 herbergi með rapp tónlist og hitt með techno/Trans/viðurstyggileg tónlist. Í viðurstyggilegri tónlist herberginu fékk maður nánast hjartaflökt vegna bassa, svo mikill var hann. Svo uppúr þurru kom undirfatasýning. HAHAHA það var svo fynndið og tilgangslaust. Eftir sýninguna var komið að súludans hjá 4 snótum sem dönsuðu allt kvöldið eftir þetta.
Það sem ég lærði eftir þetta er:
1. Ef ég ætla að fara í VIP inn á staði þarf ég að vera í fylgd með ljóskum
2. Ef ég ætla ekki að skera mig útúr á þessum stað verð ég að vera á kókaíni, heróíni,amfetamíni og LSD öllu í einu.
3. Ef maður er á lausu og lætur eins og maður eigi pening þá fer maður sennilega ekki einn heim (fyrir ykkur strákana sem eru á lausu).
Jæja nóg um skemmtistaðaþvælu, þetta
»
28.08.2007 02:36:36 / fag1
Á þeim tíma sem ég hef verið hérna hef ég tekið eftir því hversu lélegar almenningsamgöngurnar eru hérna. Maður kemmst ekkert án þess að eiga bíl, nema maður búi við Metro Railið sem er við hliðina á íbúðinni okkar . Tel ég ástæðuna vera sú að meðal kaninn vegur um 150 - 200 kg, fer amk. 3 x á mc.donalds á dag og á bíl sem eyðir 40l á hundraði að þeir geta varla röllt í vagnana. Stelpurnar (hildur,guðný og svanhv.) fóru í mollið í dag. Voru ekki neima í 6 tíma. Meina maður þarf að eyða svona miklum tíma í búðum ef maður ætlar að skoða allar flíkur í hverri einustu verslun. Þarf alltaf að skoða allt gá hvort eitthvað sé mögulega flottara í einhverri annarri búð sem mögulega er í hinum megin í mollinu. Veit ekki með ykkur hin en yfirleitt tekur það mig um 1 klst að kaupa föt(buxur, bol og skyrtu) og þá er ég kominn með nóg. Þetta er mikill hæfileiki að geta verið svona lengi í búðum. Allavega er ég ekki þeim hæfileika gæddur. Á morgun er það rúbbí æfing. Það verður fjör, vona bara að íslenska lambakjötið skili sér á morgun. Annars verð ég sennilega marinn chao Fannar
»
26.08.2007 07:23:35 / fag1
Eitt orð við þessi spjöll. SHITTTTT Ég hélt þetta mundi aldrei verða að veruleika. Ég ákvað að láta Budweiser koma nálægt vörum mínum í skiptinemateiti. Hvað gat ég gert. Var þyrstur í hitanum. Mér fannst hann viðbjóður en ákvað sammt að skola þorstanum. Ég byðst forláts til allra sem lesa þetta(þið 2). Í kvöld fengum við heimsókn frá Íslandi, Guðný og Svanhvít Komu og verða í 10 daga. Yfir og út Fannar
»
25.08.2007 22:13:17 / fag1
Jæja þá er það orðið ljóst að þessa síðu mun ég nota til að deila með ykkur líferni okkar Hildar næstu 4 mánuðina. Sumsé við erum búin að koma okkur fyrir í magnaðri blokk í miðborg Miami og á hverjum morgni tökum við lest í skólann(10mín). En nóg um það. Ég ætla að byrja á því að tjá mig aðeins því fyrir þau ykkar sem þekkið mig eitthvað þá þykir mér mjög leitt þegar fólk drekkur vondan bjór. Og vill svo til að ég er einmitt í því landi þar sem bjórinn er trúlega sá vesti sem gerist í Heiminum. Kaninn drekkur bara light bjór og vondann í þokkabót en sem betur fer eru til einhverjir drykkir fyrir okkur evrópubúana. Publix( fjarðarkaup) er í 4 mín göngu færi frá íbúðinni og höfum við verið dugleg að fara á hverjum degi í búðina, vonum að við komumst upp á lagið að fara bara einu x á viku á næstunni. nóg um væl. Ég mun henda einhverjum færslum hingað inn í vetur. chao Fannar Maðurinn sem þarf að fara að læra spænsku.
»
|
|