Á þeim tíma sem ég hef verið hérna hef ég tekið eftir því hversu lélegar almenningsamgöngurnar eru hérna. Maður kemmst ekkert án þess að eiga bíl, nema maður búi við Metro Railið sem er við hliðina á íbúðinni okkar
. Tel ég ástæðuna vera sú að meðal kaninn vegur um 150 - 200 kg, fer amk. 3 x á mc.donalds á dag og á bíl sem eyðir 40l á hundraði að þeir geta varla röllt í vagnana.
Stelpurnar (hildur,guðný og svanhv.) fóru í mollið í dag. Voru ekki neima í 6 tíma. Meina maður þarf að eyða svona miklum tíma í búðum ef maður ætlar að skoða allar flíkur í hverri einustu verslun. Þarf alltaf að skoða allt gá hvort eitthvað sé mögulega flottara í einhverri annarri búð sem mögulega er í hinum megin í mollinu.
Veit ekki með ykkur hin en yfirleitt tekur það mig um 1 klst að kaupa föt(buxur, bol og skyrtu) og þá er ég kominn með nóg. Þetta er mikill hæfileiki að geta verið svona lengi í búðum. Allavega er ég ekki þeim hæfileika gæddur.
Á morgun er það rúbbí æfing. Það verður fjör, vona bara að íslenska lambakjötið skili sér á morgun. Annars verð ég sennilega marinn
chao
Fannar